Gjafabréf

Gjafabréf
Ertu að leita að gjöf fyrir einhvern sem vantar ekkert? Eða bara síðbúinni gjöf sem þú vilt lauma með í pakkann?

Húsdýr
Með þessari gjöf sérðu einni efnaminni barnafjölskyldu fyrir húsdýri. Fjölskyldan getur fengið geit, svín eða kind.

Neyðaraðstoð
Með þessari gjöf styður þú neyðaraðgerðir SOS Barnaþorpanna fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Neyðaraðgerðir sem SOS á Íslandi taka nú þátt í að fjármagna eru í Palestínu, Úkraínu og Súdan.

Stuðningur við barnafjölskyldu
Með þessari gjöf minnkar þú líkurnar á því að börn verði vanrækt og yfirgefin.

Fyrir mömmu
Mömmur eru einstakar. Sumar þurfa meiri aðstoð en aðrar til þess að búa til betra umhverfi, veitt meiri alúð og ást og skapa betri framtíð barna sinna.

Fyrir pabba
Pabbar eru einstakir. Sumir þurfa meiri aðstoð en aðrir til þess að búa til betra umhverfi, veitt meiri alúð og ást og skapa betri framtíð barna sinna.
