Söfnun vegna neyðarástands í Beirút
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa gripið til neyðaraðgerða vegna þess alvarlega ástands sem ríkir í Beirút eftir
sprenginguna í borginni 4. ágúst sl. og olli miklu manntjóni og eyðileggingu. SOS Barnaþorpin um heim allan, þar á meðal á Íslandi, hafa því efnt til söfnunar til að bregðast við neyðinni.
Mörg börn hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við þá og margar barnafjölskyldur eru heimilislausar. SOS Barnaþorpin í Líbanon búa yfir mannafla á staðnum, þekkingu og áratuga langri reynslu sem lýtur að aðstoð við börn og barnafjölskyldur í erfiðum aðstæðum. SOS Barnaþorpin um allan heim sameinast nú um að efla þessa aðstoð á þessum erfiðu tímum.
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa því sett af stað söfnun svo að við Íslendingar getum lagt okkar af mörkum til að vernda börn í Beirút. Þú getur greitt eina upphæð að eigin vali. Hver króna telur.
SOS Barnaþorpin hafa starfað í Líbanon í yfir 50 ár og þó svo kastljós fjölmiðlanna slokkni síðar höldum við áfram að hjálpa börnunum þar. Stuðningur þinn hjálpar börnunum því ekki aðeins í nokkra daga heldur til lengri tíma.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn við munaðarlaus og yfirgefin börn og barnafjölskyldur í neyð.
Starfsfólk SOS Barnaþorpanna á Íslandi
Nýlegar fréttir
855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2024 hefur nú verið birt eftir aðalfund samtakanna 19. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall rekstrarkostnaðar er með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 1...
23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ráðstafað 23 milljónum króna af erfðagjöf til háskólamenntunar ungmenna í Afríku, nánar tiltekið í Rúanda. Ráðstöfunin er samkvæmt óskum arfleifanda, Baldvins Leifssonar...