Hvernig breyti ég greiðslukortaupplýsingum mínum?

Varstu að fá nýtt kreditkort? Það er einfalt að breyta greiðslu­korta­upp­lýs­ing­um á Mínum síðum. Þar skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi.

Þú getur líka hringt á skrif­stofu SOS í síma 5642910. Þegar þú hringir í okkur sendum við þér textaskilaboð eða tölvupóst með hlekk svo að þú getir framkvæmt breytinguna á kortanúmeri þínu. Það er vegna þess að við megum ekki taka við upplýsingum um kortanúmer í gegnum síma. Þá geymum við ekki lengur greiðslukortaupplýsingar þínar í tölvukerfinu okkar heldur kortafyrirtækið sem þú ert í viðskiptum við.

Bréf og upplýsingar frá barnaþorpum

SOS-foreldrar stakra barna fá bréf tvisvar á ári frá barnaþorpinu. Fyrra bréfið er yfirleitt sent út á tímabilinu júní – september. Í bréfinu eru upplýsingar um barnið ásamt almennum upplýsingum um barnaþorpið.

Síðla árs fá svo SOS-foreldrar jólakveðju úr barnaþorpinu ásamt fréttum af því helsta sem gerðist í þorpinu það árið ásamt upplýsingum um önnur verkefni samtakanna á staðnum. Í flestum tilvikum fylgir kveðjunni ný mynd af barninu hafi hún ekki borist fyrr á árinu.

SOS-foreldrar allra barna styrk­ja öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og fá al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Persónuvernd barnanna

Undanfarið hafa persónuverndarréttindi barnanna orðið mun strangari en áður og við látum börnin aldrei skrifa styrktarforeldrum sínum ef þau treysta sér ekki til þess. Sum barnanna vilja skrifa eða teikna mynd handa styrktarforeldrum en börnin eru eins misjöfn og þau eru mörg og við vitum ekki fyrirfram hver vilji hvers barns er.

Slíkar persónulegar bréfaskriftir eru í raun undir börnunum sjálfum komið, hvort þau vilji það eða ekki. Börnunum sjálfum er frjálst að skrifa styrktarforeldrum sínum og sum þeirra (einkum þau eldri) kjósa að gera það.

Af hverju hef ég ekki fengið bréf um styrktarbarnið lengi?

Póstþjónusta er mismunandi í heiminum og þó sjaldgæft sé kann það að gerast að bréf týnist á leiðinni. Ef þig er farið að lengja eftir bréfi um styrktarbarnið þitt viljum við fyrir alla muni vita af því, annað hvort með tölvupósti á sos@sos.is eða með símtali á skrifstofu okkar í 5642910.

Hér á Mínum síðum geturðu skoðað öll bréfin þín rafrænt tvö ár aftur í tímann.

Að skrifa styrktarbarni

Sumir SOS-foreldrar vilja skrifa börnunum og jafnvel heimsækja þau. Aðrir skrifa aldrei. Þú ræður alveg hvernig þú hagar samskiptum við þitt styrktarbarn. SOS-foreldrum er velkomið að skrifa þeim og þykir börnunum alltaf gaman að fá bréf frá útlöndum. Ekki er þó hægt að senda þeim tölvupóst. Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar viljir þú senda barni þínu í SOS barnaþorpi bréf.

  • Þegar þú gerðist SOS-foreldri fékkst þú sendar upplýsingar um barnaþorpið og þar kemur fram á hvaða tungumáli bréfið skal vera og hver utanáskriftin er (einnig er hægt að nálgast utanáskriftina hér á Mínum síðum.
  • Nafn styrktarbarnsins má ekki rita utan á umslagið heldur skal setja nafnið á miða inn í það. Á þeim miða þarf að vera SOS-númer barnsins og tilvísunarnúmer styrktarforeldris ásamt eftirnafni, með enskum stöfum. SOS-númerið og tilvísunarnúmerið eru í upplýsingamöppunni og á Mínum síðum.
  • Mikilvægt er að skrifa nafn sendanda aftan á umslagið. Póstþjónusta er misgóð í heiminum og stundum þarf að endursenda póstsendingar.
  • Best er að hafa bréfin stutt og á einföldu máli.
  • Þú getur skrifað um daglegt líf á Íslandi, fjölskylduna þína, áhugamál og það annað sem þú heldur að barnið gæti haft áhuga á.
  • Hafðu í huga að menningarheimur barnsins getur verið gjörólíkur þínum (í flestum tilvikum). Gildismat, hefðir og lífsgæði á því svæði sem barnið býr á geta því verið mjög frábrugðin því sem Íslendingar eiga að venjast og biðjum við þig að taka tillit til þess.
  • Gaman er fyrir barnið að fá myndir af þér, fjölskyldu þinni, heimili og umhverfi. Hafðu þó í huga að sums staðar geta myndir af fólki í léttum sumarfatnaði virkað illa á fólk.
  • Barnið getur sent þér bréf ef það vill. Þrátt fyrir að sum börn hafi gaman af því að skrifa styrktarforeldrum sínum bréf á það ekki við um öll börn og biðjum við styrktarforeldra að sýna því skilning.

Landsskrifstofa SOS í hverju landi sér um að samræma starf barnaþorpanna og sér til þess að starfsemi þeirra sé í samræmi við alþjóðlegar reglur samtakanna. Landsskrifstofurnar eru tengiliðir barnaþorpanna við styrktaraðila og sjá um þýðingar á bréfum. Þannig minnkum við álag á starfsfólk barnaþorpanna til mikilla muna.

Pakkar til barnanna

Við ráðleggjum þeim SOS-foreldrum sem vilja senda börnum sínum gjafir að gefa frekar peningagjöf á framtíðarreikning og leggja þannig grunn að fjárhagslegu sjálfstæði barnsins þegar það yfirgefur þorpið. En viljir þú senda pakka til barnsins þá mælum við með litlum gjöfum sem komast fyrir í umslag, s.s. límmiða, hárspennur, ritföng, fatnað o.þ.h.

Það hefur sýnt sig að stórar og dýrar gjafir sem sendar eru með pósti skila sér síður til barnanna. Mörg SOS barnaþorp eru í löndum þar sem póstþjónustan er dræm og algengt er að pakkar skemmist eða „týnist“. Þá eru víða lagðir háir tollar á slíkar sendingar og kostnaðurinn við að leysa sendinguna út getur orðið meiri en verðmæti innihaldsins. SOS Barnaþorpin hafa ekki tök á að reyna að hafa uppi á póstsendingum sem ekki skila sér í þorpin og greiða ekki fyrir að leysa pakka út úr tolli.

Í upplýsingamöppunni sem SOS foreldrar fá eftir skráningu eru upplýsingar um heimilisfang barnaþorpsins. Nafn styrktarbarnsins má ekki rita utan á pakkann heldur skal setja nafnið á miða inn í pakkann. Á þeim miða þarf að vera SOS-númer barnsins og tilvísunarnúmer SOS foreldris (styrktarforeldris) ásamt eftirnafni, með enskum stöfum. SOS-númerið og tilvísunarnúmerið eru í upplýsingamöppunni.

Peningagjafir til barnanna

SOS-foreldrar geta gefið börnum sínum peningagjafir fyrir utan föstu mánaðarlegu greiðslurnar. Margir senda börnum sínum slíkar gjafir þegar þau eiga afmæli, þegar skóla lýkur eða í tengslum við hátíðir, t.d. jól.

SOS-foreldrar geta haft samband við skrifstofu barnaþorpanna og fengið senda heim gjafagíróseðla sem greiða má í heimabanka eða næsta bankaútibúi.

Einnig má leggja gjafir til barnanna inn á reikning 0334-26-51092, kt. 500289-2529. Mikilvægt er að kennitala SOS foreldris komi fram svo rétt barn fái gjöfina.

Peningagjafir fara óskiptar til viðkomandi barns. Peningarnir eru lagðir inn á sparireikning í viðkomandi landi á nafni barnsins og fær barnið svo peninginn þegar það yfirgefur þorpið og fer að standa á eigin fótum.

Þegar SOS barni er gefin peningagjöf fær SOS foreldri sent þakkarbréf frá skrifstofu SOS Barnaþorpanna þar sem staðfest er að gjöfin hafi borist. Bréfið er sent í tölvupósti ef styrktarforeldri er með skráð netfang hjá SOS, annars er bréfið sent í bréfpósti.

Vinsamlegast sendið börnunum ekki peninga í pósti.

Hversu lengi er maður SOS-foreldri?

Börn sem skráð eru í styrktarkerfi SOS Barnaþorpanna eru á aldrinum 0-14 ára. Flest ungmennin flytja úr barnaþorpunum á bilinu 18-20 ára en stuðningur SOS-foreldra nær aldrei lengur en til 23 ára aldurs styrktarbarnsins, jafnvel þó það muni verða áfram á framfæri SOS. Þú getur þó hætt stuðningi hvenær sem er.

Við skráningu fyrir styrktarbarni máttu tilgreina ef þú hefur séróskir um aldur styrktarbarns. Margt fólk vill styrkja börn sem eru á sama aldri og þeirra eigin börn enda getur verið fólgið í því fræðslugildi fyrir börnin þín að eiga „SOS-systkini” erlendis.

Þegar ungmenni fer að huga að því að flytja úr þorpinu fær SOS foreldri (styrktarforeldri) bréf þar sem tilkynnt er um ástæður brottfarar. Í bréfinu er SOS foreldrinu boðið að styrkja annað barn og er beðið um að láta vita ef það vill ekki halda áfram.

Hugmyndin með SOS foreldra er að þeir taki þátt í því með SOS Barnaþorpunum að veita börnum í neyð langvarandi umönnun. Hins vegar getur þú hætt stuðningi hvenær sem er.

Þeim sem vilja gefa tímabundið eða styrkja fyrir aðrar upphæðir er bent á að gerast SOS Fjölskylduvinir. Henti þér betur óreglulegar styrktargreiðslur mælum við með að gefa frjáls framlög.

Hvenær flytja börnin úr SOS barnaþorpunum?

Það er ekkert aldurstakmark í SOS Barnaþorpunum. Samtökin eru ábyrg fyrir börnunum þar til þau hafa lokið menntun, eru byrjuð að vinna og geta séð um sig sjálf. Þegar börnin vilja og eru tilbúin til, þá flytja þau að heiman. Yfirleitt flytja börnin úr þorpunum á aldrinum 17-23 ára.

Þar sem svokölluð SOS ungmennaheimili eru til staðar flytja börnin þangað á unglingsárum til þess að læra smám saman að fóta sig í lífinu. Þar búa nokkrir unglingar saman á heimili og njóta leiðsagnar starfsfólks SOS. Ungmennaheimilið er staðsett í SOS Barnaþorpinu eða skammt frá og ungmennin eru enn á framfærslu SOS og í nánum samskiptum við foreldra sína.

Heimsókn í SOS barnaþorp

SOS-foreldrar geta heimsótt barnið sitt í þorpið. Það er stór dagur í lífi hvers barns þegar styrktarforeldrar þess koma í heimsókn. SOS-foreldrar eru þó beðnir um að taka eins mikið tillit til barnsins, fjölskyldu þess og allra í þorpinu og kostur er þegar þeir heimsækja þorpið.

Undirbúningur heimsóknar

Mikilvægt er fyrir alla aðila að heimsókn SOS-foreldra í þorpið takist sem best. Því biðjum við SOS-foreldra sem huga á heimsókn að láta skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi vita um fyrirhugaða heimsókn með minnst tveggja mánaða fyrirvara.

Skrifstofan veitir þér svo allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir heimsóknina og sér til þess að barnið sé í þorpinu þegar þú kemur og að tekið verði á móti þér. Þú munt einnig fá leiðsögn um þorpið og túlk ef þess þarf. Viljir þú taka með þér gjöf til barnsins eða barnaþorpsins mun skrifstofan afla upplýsinga um hvort einhverjar gjafir séu sérstaklega æskilegar eða óæskilegar.

Vinsamlegast athugið:

  • SOS-foreldri má ekki yfirgefa þorpið með barninu.
  • SOS-foreldri getur ekki gist í barnaþorpi. 
  • Starfsfólk barnaþorpsins getur ekki liðsinnt SOS-foreldrum eftir að heimsókn lýkur.
  • Barn í SOS barnaþorpi getur ekki heimsótt SOS-foreldra sína í útlöndum.
  • SOS Barnaþorpin mega ekki taka á móti skipulögðum ferðum ferðaskrifstofa í þorpin.

Hér má sjá reglur fyrir gesti í SOS Barnaþorpum sem þeir þurfa að samþykkja fyrir heimsóknina.

Persónuvernd og persónuupplýsingar

SOS Barnaþorpin leggja mikla áherslu á réttindi barna og persónuvernd. Við getum ekki gefið SOS-foreldrum upp allar upplýsingar um börnin og biðjum SOS-foreldra að sýna því skilning. Þær upplýsingar sem SOS-foreldrar fá um börnin eru eingöngu ætlaðar þeim og þeirra nánustu. Við biðjum SOS-foreldra að miðla þeim upplýsingum ekki til þriðja aðila eða opinbera á netinu eða á annan hátt.

SOS Barnaþorpin virða persónuverndarlög og vernda því persónulegar upplýsingar SOS-foreldra og SOS barna. Í persónuverndaryfirlýsingunni okkar kemur fram hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar.

SOS Barnaþorpin búa yfir persónuupplýsingum um styrktarforeldra. Um er að ræða símanúmer, netföng og aðrar þær upplýsingar sem auðvelda okkur að koma framlögum þínum til skila og veita þér þjónustu. Nöfn SOS foreldra eru send bæði landsskrifstofu SOS í viðkomandi landi og alþjóðaskrifstofunni í Vínarborg í Austurríki, en slíkt er nauðsynlegt til að halda utan um hið mjög svo stóra styrktarkerfi SOS Barnaþorpanna.

Frá og með ágúst 2022 geyma SOS Barnaþorpin á Íslandi ekki lengur greiðslukortanúmer styrktaraðila. Þau eru aðeins vistuð samkvæmt öryggisreglum hjá greiðslukortafyrirtækum.

Hefurðu aðra spurningu?

Ef þú finnur ekki svarið við spurningu þinni hérna þá mögulega finnurðu það í Spurt & Svarað. Annars er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur á sos@sos.is eða með því að hringja á skrifstofuna okkar í síma 5642910.